Erlent

Ætlar að áfrýja til hæstaréttar

Julian Assange á Occupy-mótmælunum í London á dögunum.
Julian Assange á Occupy-mótmælunum í London á dögunum. Mynd AP
Lögfræðingar Julian Assange, forsprakka WikiLeaks, ætla að áfrýja úrskurði millidómstigs til hæstaréttar, en framsalsúrskurður Julians var staðfestur í morgun, en áður hafði héraðsdómur úrskurðað að Assange skyldi vera framseldur.

Lögfræðingar Assange hafa tvær vikur, eða 14 daga, til þess að áfrýja til hæstaréttar.

Það er þó ekki einfalt mál að áfrýja málinu því lögfræðingar Assange þurfa að sýna fram á að málið varði almannahagsmuni í Bretlandi, að því er fram kemur á vefsíðu BBC.

Assange hefur verið kærður í Svíþjóð fyrir að nauðga konu og beita aðra kynferðislegu ofbeldi. Assange hefur neitað þessum sökum staðfastlega og vill meina að þær séu liður í áætlun bandarískra yfirvalda til þess að fá hann framseldan, svo hægt sé að draga hann fyrir bandaríska dómstóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×