Capello: Terry saklaus þar til sekt hans er sönnuð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. nóvember 2011 14:00 Capello kannast ekki við kynþáttafordóma í enska boltanum. Nordic Photos / Getty
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, segir að John Terry verði í landsliðshópi Englands fyrir æfingaleikina gegn Spáni og Svíum. Að hans mati er Terry saklaus af ásökunum um kynþáttafordóma uns sekt hans er sönnuð. Reuters fréttastofan greinir frá þessu. Terry, sem er fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, liggur undir grun um að hafa sýnt kynþáttafordóma gagnvart Anton Ferdinand í leik Chelsea gegn QPR á dögunum. Terry neitar sök. Capello, sem hefur þjálfað enska landsliðið síðan árið 2008, segist aldrei hafa orðið vitni að rasisma í enska boltanum. „Ég hef ekki tekið eftir kynþáttafordómum í enska boltanum. Hvað mig varðar eru vandamál meðal leikmanna vegna kynþáttafordóma ekki til staðar," sagði Capello. England mætir Spáni á Wembley næstkomandi laugardag og Svíþjóð á sama stað þremur dögum síðar. Landsliðshópurinn verður tilkynntur síðar í dag. Capello hefur sagt Terry að þrátt fyrir að hann verði valinn verði leiktími hans af skornum skammti. „Það skiptir mig máli að vita hvernig leikmenn bregðast við því að mæta heimsmeisturunum. Ég veit hvar ég hef John Terry en ég vil sjá hvernig hinir leikmennirnir standa sig," sagði Capello. „Jolean Lescott, Gary Cahill og Phil Jagielka munu spila. Ég vil líka prófa Phil Jones annars staðar á vellinum," sagði Capello en varnarmaðurinn Jones hefur einnig fengið að reyna sig á miðjunni hjá Manchester United.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira