Erlent

Carla Bruni og Nicolas Sarkozy eignuðust fallega dóttur

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og eiginkona hans Carla Bruni eignuðust sitt fyrsta barn saman í gærkvöldi, velskapaða stúlku samkvæmt fréttum erlendra fjölmiðla.

Fyrir átti Sarkozy þrjá syni frá fyrra hjónabandi og Bruni einn son. Þetta er í fyrsta sinn sem forseti Frakklands eignast barn meðan hann gegnir embættinu.

Sarkozy var ekki viðstaddur fæðinguna þar sem hann þurfti að sitja kveðjukvöldverð til heiðurs Jean-Claude Trichet fráfarandi bankastjóra Evrópska seðlabankans meðan á henni stóð. Hann gaf sér þó tækifæri til að hitta eiginkonu sína í stutta stund á fæðingardeildinni áður en hann hélt í kvöldverðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×