Erlent

Gríska þingið samþykkti mikinn niðurskurð

Þing Grikklands samþykkti í gærkvöldi annað af tveimur frumvörpum um mikinn niðurskurð í ríkisrekstrinum. Hitt frumvarpið kemur til atkvæðagreiðslu í dag.

Allsherjarverkfall lamaði allt athafnalíf Grikklands í gær og svo verður áfram í dag. Þá kom til mikilla átaka milli lögreglu og mótmælenda fyrir framan þinghúsið í Aþenu. Bensín- og reyksprengjum var kastað í lögregluna sem svaraði með táragasi og kylfum.

Í frumvarpinu sem afgreiða á í dag er meðal annars gert ráð fyrir uppsögnum um 30 þúsund opinberra starfsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×