Erlent

Hátt í 800 farast í flóðum í Suðaustur Asíu

Hátt í 800 manns hafa nú farist í Suðaustur Asíu vegna mikilla flóða í kjölfar monsúnrigningatímabilsins þar frá því í sumar.

Flóðin hafa komið einn harðast niður á Taílendingum en þar í landi hafa tæplega 350 manns farist vegna þeirra. Í Kambódíu hafa tæplega 250 manns farist í flóðunum en manntjón hefur einnig orðið í Víetnam, Laos og á Fillipseyjum.

Reiknað er með að tala látinna eigi enn eftir að hækka og að ekki fari að draga úr flóðunum fyrr en eftir nokkrar vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×