Erlent

Fernandez endurkjörin forseti Argentínu

Christina Fernandez var endurkjörin forseti Argentínu með miklum yfirburðum í forsetakosningunum í gær.

Fernandez hafði fengið 53 prósent atkvæða þegar langt var liðið á talninguna, 36 prósentustigum meira en helsti keppinautur hennar Hermes Binner.

Ferandez er 58 ára lögfræðingur og ekkja Néstors Carlosar Kirchners fyrrum forseta landsins. Helsta ástæðan fyrir endurkjöri Fernandez er að hún hefur notað mikinn hagvöxt í landinu undanfarin ár til Þess að snarhækka lífeyrisgreiðslur og barnabætur. Þá hefur atvinnuleysi í landinu ekki verið minna á síðustu tveimur áratugum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×