Erlent

Jobs vildi tortíma Android

Google og Apple hafa lengi barist um yfirráð á farsímamarkaðinum.
Google og Apple hafa lengi barist um yfirráð á farsímamarkaðinum. mynd/AFP
Steve Jobs, fyrrverandi forstjóri Apple, sagðist vilja tortíma Android-stýrikerfinu og að hann myndi ekki hika við að eyða öllu fjármagni Apple til að ná því fram. Þetta kemur fram í óútgefinni ævisögu Jobs.

Jobs sagði höfundi bókarinnar, Walter Isaacson, að hann teldi Google hafa afritað stýrikerfi Apple, iOS.

Apple stendur nú í málaferlum við nokkra snjallsímaframleiðendur sem notast við Android-stýrikerfið.

Samkvæmt útdráttum úr bókinni sem AP fréttastofan hefur undir höndum kemur fram að Jobs hafi ætlað að útrýma Android vegna þess að stýrikerfið væri stolin hugmynd og að hann myndi berjast gegn Google til síðasta dags.

Jobs fyrr í mánuðinum eftir áralanga baráttu við krabbamein í brisi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×