Erlent

Will Ferrell heiðraður

Ferrell var afar ánægður með verðlaunin.
Ferrell var afar ánægður með verðlaunin.
Grínleikarinn Will Ferrell hlaut í gær hin virtu Mark Twain verðlaun í gær.

Verðlaunin eru afhent þeim sem haft hafa langvarandi áhrif á Bandarískt samfélag með kímnigáfu sinni.

Ferrell sagði í viðtali við CNN að Mark Twain verðlaunin væru þau einu sem heiðruðu grínista og að það væri afar þýðingarmikið fyrir sig að hafa hlotið þau.

Margir vinsælir grínistar hafa hlotið verðlaunin, þar á meðal Richard Pryor og Steve Martin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×