Erlent

Nýjar ásakanir á hendur Týmósjenkó

Júlía Týmósjenkó var fundin sek um að hafa misbeitt valdi sínu fyrr í þessum mánuði.
Júlía Týmósjenkó var fundin sek um að hafa misbeitt valdi sínu fyrr í þessum mánuði. mynd/AFP
Yfirvöld í Úkraínu tilkynntu í dag að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Júlía Týmósjenkó, væri á ný undir rannsókn yfirvalda.

Rannsóknin tengist hugsanlegum fjárdrætti og skattsvikum Týmósjenkó þegar hún var stjórnarformaður orkufyrirtækis fyrir 15 árum.

Fyrr í þessum mánuði var Týmósjenkó dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að hafa misbeitt valdi sínu sem forsætisráðherra Úkraínu.

Aðstoðarmaður Týmósjenkó sagði áskanirnar vera ósannar og fjarstæðukenndar.

Rannsóknin er mikið reiðarslag fyrir stuðningsmenn Týmósjenkó en þeir vonuðust eftir að geta hafið málaferli til frelsa hana sem fyrst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×