Erlent

20 milljón býflugur sluppu

mynd/AFP
Milljónir býflugna sluppu úr búrum sínum þegar flutningabíll valt á þjóðvegi í Utah í gær. Lögreglan þurfti að loka þjóðveginum í nokkra klukkutíma á meðan býflugunum var smalað aftur í búrin.

Bílstjóri flutningabílsins og lögreglumennirnir sem komu á staðinn voru stungnir mörgum sinnum en stungurnar reyndust ekki hættulegar.

Talið er að 20 milljón býflugur hafi notið frelsisins áður en þeim var komið aftur í búrin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×