Tevez er sár og reiður Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. október 2011 12:45 Nordic Photos / Getty Images
Fjölmiðlafulltrúi Carlos Tevez segir að leikmaðurinn sé sár og reiður vegna þeirra ásakana að hann hafi neitað að spila með félaginu. Í gær birti Manchester City niðurstöður nefndar sem rannsakaði mál Tevez en honum var gefið að sök að hafa neitað að koma inn á sem varamaður í leik City gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu. Tevez var sektaður um fjögurra vikna laun og settur í tveggja vikna bann, sem hann hefur þegar tekið út. Tevez er afar ósáttur við niðurstöðuna og íhugar nú að lögsækja Roberto Mancini, stjóra City, vegna þeirra ummæla sem hann lét falla eftir leikinn. Mancini staðhæfði þá að Tevez hafi neitað að spila en sjálfur sagði kappinn að um misskilning hafi verið að ræða. Eftir rannsóknina breytti City hins vegar kæru sinni og var honum refsað fyrir að neita að hita upp þegar eftir því var leitað. „Honum sárnar þær ásakanir að hann hafi neitað að spila þegar kæra City gekk út á að hann hafi neitað að hita upp,“ sagði fjölmiðlafulltrúinn við enska fjölmiðla. „Honum finnst að orðspor hans hafi hlotið skaða af þessari umræðu. Hann neitar þessum ásökunum staðfastlega og ætlar að berjast gegn þeim af öllum krafti.“ Hann segir þó að Tevez muni byrja að æfa á ný ef eftir því verður leitað. Það sé þó alls óvíst hvað taki við, því Mancini hafi sagt að Tevez muni aldrei aftur spila með Manchester City. Sjálfur er Tevez opinn fyrir öllum möguleikum.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira