Erlent

Michael Jackson og Stieg Larsson þéna vel

Jackson nýtur enn gríðarlegra vinsælda.
Jackson nýtur enn gríðarlegra vinsælda.
Michael Jackson er söluhæsta látna stjarnan, annað árið í röð. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Forbes. Í blaðinu kemur fram að Jackson hafi þénað 170 milljónir dollara á síðasta ári.

Jackson lést í júní árið 2009.

Forbes telur að Jackson muni aftur verða í efsta sæti listans á næsta ári. Talið er að vinsældir Jacksons muni aukast enn frekar eftir að fjöllistahópurinn Cirque du Soleil frumsýnir sýningu byggða á tónlist hans.

Elvis er í öðru sæti listans en hann þénaði 55 milljónir dollara. Á eftir honum koma Marilyn Monroe, Elizabeth Taylor, John Lennon og Albert Einstein.

Í níunda sæti listans má svo finna rithöfundinn Stieg Larsson en Millennium þríleikur hans hefur notið gríðarlegra vinsælda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×