Erlent

Þingmannsfrú rændi ketti viðhaldsins

Mynd/Getty
Eiginkona þingmanns á breska þinginu hefur verið dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela ketti frá hjákonu eiginmannsins. Christine Hemming, sem er gift John Hemming þingmanni frjálslyndra jafnaðarmanna var einnig dæmd til að vinna 150 klukkustundir í samfélagsþjónustu og borga þúsund pund í málsvarnarlaun.

Dómarinn sagði við uppkvaðninguna að innbrot væri alvarlegur glæpur en viðurkenndi þó að óvenjulegar heimilisaðstæður hjónanna hefðu sett nokkurn þrýsting á konuna. John Hemming hefur í ellefu ár átt í ástarsambandi við Emily Cox og eiga þau eitt barn saman. Báðar konurnar vissu af hvor annarri en hann flutti loks frá eiginkonunni skömmu fyrir kattaþjófnaðinn. Kötturinn hefur ekki fundist en frú Hemming staðhæfir að hún hafi sleppt honum lausum nálægt húsi viðhaldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×