Erlent

Ofbeldisfull mótmæli í Róm - mótmælt á Austurvelli klukkan þrjú

Mótmæli í Róm. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Mótmæli í Róm. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Mótmæli í Róm á Ítalíu hafa snúist upp í ofbeldisfull mótmæli samkvæmt fréttavef AP en um hundrað þúsund manns mótmæla í miðborg Rómar. Svartan reyk leggur nú frá miðborginni þar sem mótmælendur hafa meðal annars kveikt í bílum.

Mótmælin eru hluti af heimsmótmælum sem meðal annars fara fram hér á landi og hefjast klukkan þrjú. Upphaflega var mótmælt í Kanada og var þá mótmælt græðgi fyrirtækja. Síðar var mótmælt á Wall Street og fleiri lönd hafa bæst í hópinn.

Fimm þúsund manns mótmæla nú í Frankfurt fyrir utan Seðlabanka Evrópu. Þá eru mótmæli einnig í London þar sem fimm hundruð manns  mótmæla fyrir utan Kauphöllina í borginni.


Tengdar fréttir

Alheimsmótmæli teygja anga sína til Íslands

Boðað hefur verið til mótmælafundar á Lækjartorgi á morgun, þann 15. október, sem ber yfirskriftina „Tökum Torgin“. Þessi fundur mun hinsvegar ekki einungis vera bundinn við Lækjartorg, þar sem alls er áætlað að mótmælt verði í hátt í eitt þúsund borgum víðsvegar um heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×