Erlent

Hafa gefið út nöfnin á föngunum sem verður sleppt

Palestína.
Palestína.
Stjórnvöld í Ísrael hafa gefið út nöfn á þeim fjögur hundruð sjötíu og sjö föngum frá Palestínu sem sleppt verður í skiptum við Ísraelska hermanninn Gilad Shalit sem situr nú í fangelsi í Palestínu. Forseti Ísrael Simon Peres hefur hafið náðunarferli fangana.

Sleppa á föngunum á þriðjudag en það er fyrsti hluti nýrra samninga Ísraels og Palestínu.

Ísraelar hafa heitið því að sleppa fimm hundruð og fimmtíu föngum til viðbótar þegar Shalit verður kominn aftur til síns heima. Shalit hefur setið inni í palestínsku fangelsi frá árinu 2006, en þá var hann aðeins nítján ára gamall. Samningar um fangaskiptin voru kynntir síðastliðinn þriðjudag en viðræðurnar hafa staðið í nokkur ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×