Erlent

Mótmælendur handteknir í Bandaríkjunum

Frá mótmælunum í Róm í gærdag. Berlusconi vill refsa mótmælendum og kallar þá slagsmálahunda.
Frá mótmælunum í Róm í gærdag. Berlusconi vill refsa mótmælendum og kallar þá slagsmálahunda.
Lögreglan í New York handtók um það bil sjötíu manns í gærkvöld sem mótmæltu efnahagsástandinu í Bandaríkjunum við Times Square.

Fjörtíu og fimm voru handteknir við Times Square en tuttugu og fjórir voru teknir höndum fyrir að ganga um Citibank útibú við Washington square garðinn í leyfisleysi.

Þá særðust að minnsta kosti sjötíu manns eftir mótmæli í Róm þegar hin friðsömu mótmæli brutust út í bardaga á götum borgarinnar. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði ofbeldið vera umhugsunarvert. Finna verði slagsmálahundana og refsa þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×