Erlent

Synir Mubaraks áttu stórfé á leynireikningum

Stjórnvöld í Egyptalandi hafa greint frá því að fundist hafa 340 milljónir dollara, eða um 40 milljarðar kr. á leynireikningum í Sviss sem tveir synir Mubaraks fyrrum forseta landsins áttu.

Áður hafði verið lagt hald á um 450 milljónir dollara sem voru á reikningum í eigu Mubaraks-fjölskyldunnar og náinna aðstoðarmanna víða í Evrópu.

Synirnir tveir eru báðir í haldi í Kaíró og bíða þess að réttað verði yfir þeim. Þeir eru ákærðir um spillingu og að hafa misbeitt valdi sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×