Erlent

Alvarleg kreppa í danskri kvikmyndagerð

Dönsk kvikmyndagerð er nú í alvarlegri kreppu. Hætta er á að þjóðin glati heilli kynslóð af hæfileikaríku kvikmyndagerðarfólki þar sem ekki fæst fjármagn til að gera stórar kvikmyndir í landinu.

Í umfjöllun um málið í Berlingske Tidende segir að danski kvikmyndaheimurinn þjáist af kreppustemmingu, ráðleysi og óeiningu. Það bætir ekki ástandið að margir bankar í landinu hafa orðið gjaldþrota og hinir halda að sér höndunum með að lána til kvikmyndagerðar.

Peter Aalbæk Jensen forstjóri Zentropa segir að tölulega séð taki það áratug og þrjár kvikmyndir að búa til leikstjóra á heimsvísu eins og Susanne Bier eða Lars von Trier. Því sé hætta á að glata kynslóð af kvikmyndagerðarfólki í því ástandi sem ríkir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×