Erlent

Íran segja samsæri skipulagt af andspyrnuhreyfingu

Yfirvöld í Íran hafa neitað öllum ásökunum í málinu
Yfirvöld í Íran hafa neitað öllum ásökunum í málinu mynd/AFP
Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að einn af þeim sem sakaður er um að hafa skipulagt morðtilræðið á hendur sendiherra Sádí-Arabíu í Bandaríkjunum hafi í raun verið meðlimur í andspyrnuhreyfingunni Muhajedeen-Khalq.

Ekki er vitað með vissu hver tilgangur samsærisins var en fréttastöðinn Mehr í Íran telur að tilræðismaðurinn hafi ætlað að koma sök á Íran svo að útskúfun landsins yrði enn meiri.

Talsmenn Muhajedeen-Khalq segja ásakanirnar vera fásinnu.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ekki tjáð sig um tilkynninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×