Erlent

Fyrsta geimhöfn jarðar

Spaceport America er fyrsta geimhöfn veraldar.
Spaceport America er fyrsta geimhöfn veraldar. mynd/AFP
Breski milljarðamæringurinn Richard Branson hefur opnað fyrstu geimhöfnina í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum. Athöfnin átti sér stað í dag og vígði Branson höfnina með því að brjóta kampavínsflösku á vegg hennar.

Geimhöfnin er kölluð Spaceport America og mun vera miðpunktur geimferðaáætlunar Bransons, Virgin Galactic.

Branson vonar að Virgin Galactic komi fyrstu flaug sinni á sporbraut um jörðu að ári liðnu, stuttu eftir það verði vonandi hægt að byrja að ferja fólk út í geim.

Um 150 manns hafa þegar bókað sæti í geimflaug Virgin Galactic. Þar á meðal er Buzz Aldrin en hann er næstfyrsta manneskjan til að ganga á Tunglinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×