Erlent

Verkfall lamar athafnalíf í Grikklandi

Tveggja sólarhringa verkfall sem hefst í dag mun lama allt athafnalíf í Grikklandi. Það eru tvö stærstu verkalýðsfélög landsins sem standa að verkfallinu.

Verkfallið hefst á sama tíma og þing Grikklands greiðir atkvæði um tvö ný frumvörp sem fela í sér áframhaldandi sparnað og aðhald í rekstri hins opinbera. Ætlunin er að lækka laun og lífeyri, hækka skatta og segja upp töluverðum fjölda opinberra starfsmanna.

Verkalýðsfélögin segja þessi frumvörp jafngilda stríðsyfirlýsingu en stjórnvöld segja að enginn annar kostur sé í stöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×