Erlent

George Clooney ætlar ekki í atvinnustjórnmál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
George Clooney er að kynna nýja mynd sína.
George Clooney er að kynna nýja mynd sína. mynd/ afp.
Hollywoodleikarinn og hjartaknúsarinn George Clooney ætlar ekki að gera stjórnmál að atvinnu sinni. Hann ætlar, eftir sem áður, að taka þátt í stjórnmálum af hliðarlínunni. Ástæðan fyrir þessum yfirlýsingum Clooneys er sú að hann er um þessar myndir að kynna nýja mynd sem hann leikur í og leikstýrir. Myndin heitir The Ideas of March. Í myndinni leikur hann fylkisstjóra að nafni Mike Morris, sem jafnframt tekur þátt í forkosningum fyrir forsetakjör.

„Ég ólst upp á tíma þar sem flestir höfðu stjórnmálavitund,“ sagði leikarinn á blaðamannafundi á kvikmyndahátíð í Lundúnum í dag, samkvæmt frásögn BBC fréttastöðvarinnar. Hann sagði að margar af mestu breytingunum í mannkynssögunni hefðu orðið þegar hann ólst upp. Hann hafi verið alinn upp við að taka þátt í umræðunni og hann muni gera það áfram.

Clooney sagði jafnframt að kvikmyndaiðnaðurinn hefði ekki mikil áhrif á stjórnmálin. „Hann endurspeglar venjulega hlutina,“ sagði hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×