Vítisenglar: Samtals dæmdir í 130 ára fangelsi 30. september 2011 07:01
15 menn sem allir tengjast Vítisenglum í Danmörku voru í gær dæmdir í samtals 130 ára fangelsi. Einna þyngsta dóminn fékk Brian Sandberg, einn leiðtoga Vítisengla í landinu en hann var dæmdur í tæplega tólf ára fangelsi fyrir morðtilraun og fyrir að skipa öðrum að fremja morð. Málareksturinn gegn meðlimum mótorhjólagengisins er sá umfangsmesti í sögu Danmerkur og höfðu saksóknarar krafist þyngri refsinga og meðal annars að þrír meðlimanna yrðu dæmdir í lífsstíðarfangelsi. Mennirnir voru allir ákærðir fyrir aðild sína að átökum sem blossuðu upp á milli Vítisengla og áhangenda þeirra annarsvegar og gengja innflytjenda annarsvegar. Enginn lést í átökunum en margir munu aldrei ná sér af alvarlegum meiðslum. Fjórir fullgildir meðlimir Vítisenglanna voru dæmdir en sá sem þyngstan dóminn hlaut var áhangandi sem var að reyna að vinna sig upp í áliti til að hljóta fulla aðild. Hann var sakaður um sex morðtilraunir og sakfelldur í fjórum þeirra og dæmdur í fimmtán ára fangelsi. Ellefu af þessum fimmtán hafa þegar áfrýjað dómum sínum og verða þeir í gæsluvarðhaldi uns dómur fellur í Hæstarétti.
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira