Owen með tvö mörk fyrir Man. United - Bolton sló út Aston Villa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2011 20:42 Michael Owen fagnar marki í kvöld. Mynd/AFP
Varalið Manchester United átti ekki í miklum vandræðum með Leeds á Elland Road í kvöld í 3. umferð enska deildarbikarsins. United vann 3-0 þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Michael Owen skoraði tvö mörk í kvöld í sínum fyrsta leik í byrjunarliði. Arsenal og Bolton komust einnig áfram í enska deildarbikarnum í kvöld. Michael Owen fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Manchester United á tímabilinu og var búinn að skora tvö mörk eftir rúman hálftíma. Fyrra markið skoraði Owen eftir sendingu Ji-Sung Park á 15. mínútu og það síðara eftir sendingu Mame Biram Diouf. Ryan Giggs skoraði síðan þriðja markið á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir að hafa farið illa með varnarmann Leeds. United lét þetta nægja og engin mörk voru skoruð í seinni hálfleiknum. Grétar Rafn Steinsson var í byrjunarliði Bolton sem vann 2-0 sigur á Aston Villa á Villa Park. Chris Eagles og Gaël Kakuta skoruðu mörkin í seinni hálfleik. Arsenal vann 3-1 sigur á 2. deildarliði Shrewsbury Town á heimavelli en það byrjaði ekki vel fyrir Arsenal þegar James Collins kom gestunum í 1-0 á 16. mínútu. Kieran Gibbs náði að jafna leikinn á 33. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Carl Jenkinson. Alex Oxlade-Chamberlain kom Arsenal síðan yfir á 58. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið og Yossi Benayoun innsiglaði síðan sigurinn tólf mínútum fyrir leikslok. Allir markaskorarar Arsenal í kvöld voru að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið.Úrslitin í enska deildarbikarnum í kvöld:Aldershot Town - Rochdale 2-1 0-1 Ashley Grimes (45.), 1-1 Michael Rankine (47.), 2-1 Daniel Hylton (78.)Arsenal - Shrewsbury Town 3-1 0-1 James Collins (16.), 1-1 Kieran Gibbs (33.), 2-1 Alex Oxlade-Chamberlain (58.), 3-1 Yossi Benayoun (78.)Aston Villa - Bolton 0-2 0-1 Chris Eagles (54.), 0-2 Gaël Kakuta (77.)Burnley - Milton Keynes Dons 2-1 0-1 Daniel Powell (6.), 1-1 Kieran Trippier (59.), 2-1 Andre Bikey (90.)Leeds United - Manchester United 0-3 0-1 Michael Owen (15.), 0-2 Michael Owen (32.), 0-3 Ryan Giggs (45.)Nottingham Forest - Newcastle 2-2 (framlengt) 0-1 Peter Løvenkrands (39.), 1-1 Robbie Findley (46.), 1-2 Peter Løvenkrands (60.), 2-2 Matt Derbyshire (66.)Stoke - Tottenham 0-0 (framlengt)Wolves - Millwall 5-0 1-0 David Edwards (3.), 2-0 Adam Hammill (7.), 3-0 George Elokobi (38.), 4-0 James Spray (77.), 5-0 Adlene Guedioura (88.)
Enski boltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira