Nýtt Facebook kynnt á morgun - miklar breytingar í vændum 21. september 2011 10:35 Mark Zuckerberg mun kynna nýtt Facebook á morgun mynd úr safni
Facebook mun gjörbreyta viðmóti síðunnar í þessari viku. Sumir íslenskir notendur hafa nú þegar tekið eftir einhverjum breytingum en samkvæmt heimildum erlendra fjölmiðla mun stærsta breytingin verða gerð á morgun. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, mun kynna breytingarnar á ráðstefnu á morgun sem ber heitið f8. Heimildarmenn bandarísku fréttastofunnar CNN segja breytingarnar verða þær mestu sem gerðar hafa verið á samskiptasíðunni vinsælu frá opnun hennar. Breytingarnar miða allar að því að gera persónulegu síðu hvers notanda að helsta samskiptavettvangi vefjarins. Þannig eigi að fá notendur Facebook til dvelja þar lengur á hverjum degi þar sem þetta nýja fyrirkomulag er tímafrekara. Þá herma heimildir New York Times að síðan muni koma á fót margmiðlunarkerfi sem sýni hvað notandi er að horfa á eða hlusta á hverju sinni. Til að mynda ef notandinn er að hlusta á Lady Gaga þá verði vinum hans kleift að sjá hvaða lag hann er að hlusta á með söngkonunni.Einhverjir ættu að hafa tekið eftir breytingum á Facebook og er þessi breyting á meðal þeirra sem er komin í loftið.Þær breytingar sem margir Íslendingar hafa nú þegar tekið eftir eru meðal annars að vinsælustu færslurnar frá því að notandi skráði sig síðast inn á síðuna birtast nú efst og verða merktar sérstaklega. Þá hefur Facebook forritað kerfi sem skynjar hvaða færslur kunna að vekja mestan áhuga notandans og merkir þær sérstaklega. Þá hefur verið nefnt að Facebook muni opna sölu á forritum, eða svokallað „app store" þar sem notendur geta nálgast viðbætur, til dæmis leiki og forrit gegn gjaldi. Facebook hefur neitað að tjá sig um breytingarnar en ýmsar fréttir af þeim hafa lekið í bandaríska fjölmiðla. Samkvæmt heimildum CNN vinna nú starfsmenn síðunnar hörðum höndum að því að fínpússa þetta nýja kerfi áður en það verður kynnt opinberlega á morgun.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira