Bellamy og Hargreaves á skotskónum í enska deildarbikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2011 20:42 Owen Hargreaves fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool og Manchester City komust áfram í enska deildarbikarnum í kvöld. Liverpool vann 2-1 sigur á Brighton & Hove Albion en Manchester City sló út deildarbikarmeistara Birmingham. Leikur Chelsea og Fulham endaði með markalaust jafntefli og framlenging stendur nú yfir. Liverpool lenti í basli með Brighton & Hove Albion sem er á toppnum í ensku b-deildinni. Liverpool vann leikinn á endanum 2-1 þar sem Brighton minnkaði muninn úr vítaspyrnu í lok leiksins. Craig Bellamy kom Liverpool í 1-0 eftir sjö mínútur í sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu. Hann skoraði með skoti úr teignum eftir að hafa fengið sendingu frá Luis Suarez. Bellamy var nálægt því að bæta við marki á 41. mínútu þegar þrumuskot hans af löngu færi úr aukaspyrnu small í þverslánni. Steven Gerrard kom inn á sem varamaður þegar fimmtán mínútur voru eftir og lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool síðan í mars. Dirk Kyut innsiglaði síðan sigurinn á 81. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Maxi Rodriguez en Ashley Barnes minnkaði muninn úr víti í blálokin. Manchester City vann 2-0 sigur á deildbikarmeisturum Birmingham þar sem Roberto Mancini, stjóri City, hvíldi marga lykilmenn. Owen Hargreaves fagnaði því, að ná að spila meira en tíu mínútur í fyrsta sinn í þrjú ár, með að koma Manchester City í 1-0 á 17. mínútu með þrumuskoti fyrir utan teig. Mario Balotelli bætti síðan við öðrum marki á 38. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki.Úrslit og markaskorarar í enska deildarbikarnum í kvöld:Brighton & Hove Albion - Liverpool 1-2 0-1 Craig Bellamy (7.), 0-2 Dirk Kuyt (81.), 1-2 Ashley Barnes, víti (90.)Cardiff City - Leicester City 2-2 (framlengt) 1-0 Don Cowie (33.), 1-1 Steve Howard (40.), 1-2 Lloyd Dyer (66.), 2-2 Rudy Gestede (82.)Chelsea - Fulham 0-0 (framlengt)Manchester City - Birmingham 2-0 1-0 Owen Hargreaves (17.), 2-0 Mario Balotelli (38.)Southampton - Preston North End 2-1 1-0 Jos Hooiveld (27.), 1-1 Adam Barton (51.), 2-1 Adam Lallana (70.)
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Fleiri fréttir Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Sjá meira