Manchester City með fullt hús eftir sigur í markaleik í Bolton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2011 00:01 Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester City menn byrja tímabilið vel í ensku úrvalsdeildinni því liðið vann 3-2 útisigur á Bolton í kvöld. City hefur því fengið sex stig og skorað sjö mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum á leiktíðinni og situr í toppsæti deildarinnar. Manchester City náði tvisvar tveggja marka forystu í leiknum, 2-0 og 3-1 en Bolton menn náðu í bæði skiptin að minnka muninn í eitt mark. Nær komust Grétar Rafn Steinsson og félagar þó ekki í leiknum og City-menn fögnuðu góðum útisigri en bæði liðin höfðu unnið 4-0 sigur í fyrstu umferðinni. David Silva kom City í 1-0 á 26. mínútu með skoti fyrir utan teig en boltinn fór hreinlega í gegnum Jussi Jääskelainen í marki Bolton. Jaaskelainen átti hinsvegar ekki möguleika á því að verja þrumuskot Gareth Barry á 38. mínútu en Barry kom þá City í 2-0 með flottu skoti fyrir utan teig. Ivan Klasnic minnkaði muninn fyrr Bolton strax á næstu mínútu með góðu skoti eftir sendingu frá Martin Petrov og staðan var því 2-1 í hálfleik. Edin Dzeko kom City í 3-1 í upphafi seinni hálfleiksins eftir langa sendingu frá James Milner en Kevin Davies minnkaði muninn á 63. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf fá Martin Petrov. Sergio Agüero náði ekki að skora í leiknum en var oft mjög nálægt því í fyrri hálfleiknum. Hann fór síðan útaf fyrir Carlos Tévez á 68. mínútu. Hér fyrir neðan masjá allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Fleiri fréttir Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Sjá meira