Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 30. september 2026 21:50 Alyssa Cerino í baráttunni við Ástu Júlíu Grímsdóttur í kvöld. Anton Brink/Vísir Valur fékk Íslandsmeistara Njarðvík í heimsókn í N1 höllina í kvöld þegar síðustu leikir fyrstu umferðar Bónus deild kvenna fóru fram. Eftir jafnan leik framan af stigu Valskonur á bensíngjöfina í fjórða leikhluta og fóru að lokum með öruggan og óvæntan þrettán stiga sigur 77-64. Ásta Júlía Grímsdóttir var heiðruð fyrir leik fyrir framlag sitt fyrir Val en hún var að snúa aftur í N1 höllina nú í búningi Njarðvíkur eftir að hafa verið í 9 ár hjá Val. Ásta Júlía setti að sjálfsögðu fyrstu stig leiksins á töfluna fyrir Njarðvík. Valur - Njarðvík Bónus deild kvennaAnton Brink/Vísir Mikil barátta einkenndi fyrsta leikhlutann og bæði lið þurftu að hafa vel fyrir sínum stigum. Njarðvík náði áhlaupi en Valsliðið svaraði og leyfði þeim grænklæddu ekki að slíta sig frá. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 18-20 Njarðvík í vil. Þessi barátta varð ekkert minni í öðrum leikhluta. Það var hart barist um öll stig og alla bolta. Það var ekki mikið skorað í leikhlutanum og Njarðvík fór með tveggja stiga forskot inn í hálfleikinn 33-35. Helena Rafnsdóttir í baráttunni við Söru Líf BoamaAnton Brink/Vísir Njarðvík byrjaði seinni hálfleikinn betur og setti Dani Rodriguez fyrstu stigin á töfluna þegar skotklukkan var að renna frá þeim grænklæddu. Valskonur gerðu þó vel að ná að jafna leikinn með frábærri baráttu. Hulda María Agnarsdóttir og Emma Grace Theódórsson svöruðu þá með tveim þristum í röð fyrir Njarðvík. Gestirnir komu sér í góða stöðu en Valur gaf ekkert eftir. Eftir þriðja leikhluta var staðan 47-52 fyrir Njarðvík. Valur - Njarðvík Bónus deild kvennaAnton Brink/Vísir Valur byrjaði fjórða leikhlutann virkilega sterkt og kom Bergdís Anna Magnúsdóttir Val yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar hún setti þrist til að koma þeim í 55-52. Þetta átti eftir að vera góð fyrirheit yfir því hvað var í vændum. Þegar leið á leikhlutann náði Valur að taka skrefið fram úr Njarðvík og um leið og Njarðvík varð að fara taka meiri áhættur voru Valskonur fljótar að refsa og þær fóru að lokum með frábæran þrettán stiga sigur 77-64. Atvik leiksins Bergdís Anna Magnúsdóttir setur þrist í fjórða leikhluta til þess að koma Val yfir í fyrsta sinn í leiknum. Það gaf þeim hellings orku sem kveikti bál fyrir það sem koma skyldi. Stjörnur og skúrkar Reshawna Stone í baráttunni í kvöldAnton Brink/Vísir Reshawna Rose var öflug í liði Vals og var stigahæst á vellinum með 23 stig. Alyssa Marie Cerino átti þá líka stórar körfur og var með tvöfalda tvennu. Hún var með 13 stig og tók 10 fráköst. Dzana Crnac átti einnig mikilvæg stig á mikilvægum augnablikum fyrir Val. Hjá Njarðvík er það nær einungis Dani Rodriguez sem getur farið með höfuð hátt úr þessum leik. Hún var með 21 stig og var sú eina í liði Njarðvíkur sem var að reyna draga einhvern vagn sóknarlega. DómararnirBjarki Þór, Jón Þór og Bjarni Rúnar sáu um flautuleikinn í kvöld. Það verður bara að segjast að dómgæslan var kaflaskipt. Alls ekki góð á köflum en á heildina litið er þó ekki hægt að klína henni á það hvernig fór.Stemning og umgjörðÞað var stuð og stemning í N1 höllinni í kvöld. Ungir iðkenndur fengu að spreyta sig á körfunni í leikhléum og það var þokkalegasta mæting í kvöld.ViðtölEinar Árni Jóhannsson fer yfir málin með sínu liði í kvöld.Anton Brink/Vísir„Það lélegasta sem ég hef séð sóknarlega frá mínu liði“„Þetta var slök frammistaða bara til þess að einfalda þetta“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur eftir tapið í kvöld. „Mér fannst bara krafturinn vera Valsmeginn en þetta er líklega það lélegasta sem ég hef séð sóknarlega frá mínu liði komandi inn í mitt þriðja tímabil með þetta lið“„Við vorum bara eins og við værum búnar að vera í löngu fríi“Leikurinn var jafn lengst af en Valur flaug fram úr í restina. „Þetta var í raun framhald á því sem var búið að vera í gegnum leikinn hjá okkur sóknarlega. Við áttum örfáar rispur í þessum leik þar sem að mér finnst okkur bjóðandi“„Heilt yfir þá bara rosalega slakt. Við skorum tólf stig í leikhlutanum og 64 stig í leiknum“„Varnarlega og þá í fyrri hálfleik fyrir utan að þær voru að taka sóknarfráköst, þær tóku átta sóknarfráköst í fyrri hálfleik að þá varnarlega þá var þetta allt í lagi í fyrri hálfleik“„Við erum að halda þeim í ef ég man rétt einhverjum 33 stigum en varnarleikurinn í fjórða leikhluta er bara dapur. Við gefum upp þrjátíu stig og getum ekki klínt á eitthvað að þurfa veðja á eitthvað í restina, þetta var bara flatt og lélegt í báða enda í fjórða leikhluta“ sagði Einar Árni Jóhannsson. Bónus-deild kvenna Valur UMF Njarðvík Körfubolti