Sex létust hið minnsta í Ísrael 18. ágúst 2011 12:22 Mynd/AP
Að minnsta kosti sex liggja í valnum eftir hryðjuverkaárásirnar í Ísrael í morgun. Um þaulskipulagðar árásir virðist hafa verið að ræða en fyrst létu byssumenn til skarar skríða gegn langferðarbíl í suðurhluta landsins. Skömmu síðar var önnur árás gerð á bifreið á sama svæði. Talsmaður Ísraelshers segir að nokkrir hafi látist í árásunum en tala látinna liggur ekki fyrir. Þó hefur Reuters fréttastofan eftir sjúkraflutningamönnum á staðnum að sex hafi fallið í það minnsta. Þeir sem liggja í valnum eru bæði úr röðum óbreyttra borgara og hermenn, en þegar ísraelsk hersveit hóf eftirför eftir árásarmönnunum lentu þeir í fyrirsát. Fimm munu vera alvarlega slasaðir eftir árásina á bifreiðina og fimm til viðbótar slösuðust í árásinni á rútuna. Talsmaður hersins segir að árásarmennirnir hafi verið afar vel vopnum búnir. Þeir hafi notast við sprengjur og þunga fallbyssu í árásunum. Ísraelsk útvarpsstöð flutti síðan fregnir af sprengingu í borginni Beresheva sem er á sömu slóðum en þær fregnir hafa nú verið bornar til baka. Enn er allt á huldu um hverjir hafi staðið að árásinni.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Sjá meira