Arnar Gunnlaugsson: Vantaði að menn fórni sér fyrir málsstaðinn Hjalti Þór Hreinsson á Akureyri skrifar 3. ágúst 2011 22:04
Arnar Gunnlaugsson var þungt hugsi eftir tap Fram gegn Þór í kvöld. Liðið er á hraðri leið niður í 1. deildina eftir 3-0 tap og ráðleysið virðist ríkja í Safamýrinni. Við gefum Arnari einfaldlega orðið. "Það var vendipunktur í stöðunni 1-0 þegar við fengum algjört dauðafæri til að jafna en markmaðurinn þeirra varði vel. Eftir það klúður sá maður hvernig vonleysið færðist yfir okkur og jákvæðnin yfir til þeirra. Svona vill þetta oft verða. Fótboltinn snýst um móment. Þeir gengu á lagið og þeir voru bara meiri karlmenn en við í dag." "Menn fóru að vorkenna sjálfum sér, nöldra í dómaranum og allt á móti manni. Heimurinn að hrynja og allur sá pakki." "Það eina jákvæða við þetta er að nú verða menn bara að einbeita sér að því að spila fótbolta, af því liðið er bara fallið eins og staðan er í dag. Menn verða að gera það sem þeir hafa gert frá því þeir fæddust, taka boltann niður og senda hann, án þess að hafa allar heimsins áhyggjur á herðum sér." "Þetta var algjör úrslitaleikur og við sýndum enga karlmennsku á tímabili. Það er ótrúlegt að segja að við höfum spilað tvo leiki gegn Þór og ekki skorað, ég hefði haldið að þú værir klikkaður ef þú segðir mér það eftir leikina sem hlutlaus aðili." "Þetta er fótboltinn í hnotskurn. Það hjálmar manni enginn nema maður sjálfur. Það eru allir að bíða eftir augnabliki sem snýr tímabilinu við, bolti sem hrekkur inn af varnarmanni eða einhver neglir í skeytin af 40 metra færi." "Það sást hvernig við koðnuðum aðeins niður. Það vantaði einhvern neista í liðið og að menn fórni sér fyrir málsstaðinn," sagði Arnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjá meira