Sky Sports: Arsenal hafnaði tilboði Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. ágúst 2011 10:45 Cesc Fabregas er enn sem komið er leikmaður Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Fréttastofa Sky Sports hefur það eftir heimildum sínum að Arsenal hafi hafnað síðasta boði Barcelona í Cesc Fabregas, fyrirliða enska liðsins. Fabregas mun hafa sjálfur lagt til þrjár milljónir evra í tilboð Börsunga. Áður hafði Arsenal hafnað tveimur tilboðum Barcelona í kappann en samkvæmt fregnum síðastliðna daga mun þetta hafa verið lokatilboð Börsunga í bili. Arsenal vill ekki láta Fabregas frá sér fyrir minna en 45 milljónir evra en talsvert vantaði upp á tilboð Börsunga. Samkvæmt sömu frétt bauð Barcelona 29 milljónir evra strax og sex milljónir til viðbótar sem kæmu til greiðslu síðar. Þá mun Fabregas sjálfur lofað því að leggja þrjár milljónir til viðbótar. Heildarpakkinn var því 38 milljóna evra virði. Fabregas hefur verið sterklega orðaður við Barcelona, uppeldisfélagið sitt, undanfarin tvö ár en enn hefur ekki orðið af félagaskiptum hans þangað. Fabregas hefur ekkert spilað með Arsenal á undirbúningstímabilinu en tók þó þátt í opinni æfingu félagsins í gær. Þar hitti hann stuðningsmenn Arsenal í fyrsta sinn síðan í vor. Spænsk dagblöð fjölluðu mikið um Fabregas í morgun og segja mjög líklegt að Fabregas muni á endanum ganga til liðs við Barcelona áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðamótin. Arsenal mætir Benfica í æfingaleik um helgina og er talið líklegt að Fabregas komi við sögu í þeim leik.
Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira