Hungursneyð í Sómalíu - helmingur íbúa í suðurhlutanum vannærðir 20. júlí 2011 11:01 Móðir með alvarlega vannært barn sitt á spítala í Lodwar, höfuðstað Turkana-héraðs í Keníu. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir hungursneyð í suðurhluta Sómalíu en í hlutum Keníu, Eþíópíu og Djúbútsí en ástandið einnig grafalvarlegt. UNICEF hefur þungar áhyggjur af ástandinu. Mynd: UNICEF / Kate Holt
Í morgun lýstu Sameinuðu þjóðirnar formlega yfir hungursneyð í tveimur héruðum Sómalíu, Bakool og í Neðri-Shabelle. Í tilkynningu frá UNICEF segir að hvergi í heiminum sé meiri vannæring en í landinu. Þar segir að neyðin í Sómalíu hafi beint áhrif á líf 3,7 milljónir manna og helmingur þeirra sé á barnsaldri. Einn af hverjum fimm er yngri en fimm ára. „Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur þungar áhyggjur af stöðunni. Því yngri sem börnin eru því berskjaldaðari eru þau gagnvart ástandinu - og í meiri hættu á að láta lífið. Fái hjálparstofnanir ekki nauðsynlegan stuðning hefur UNICEF áhyggjur af því að hungursneyðin breiðist út yfir allan suðurhluta Sómalíu á innan við tveimur mánuðum. Líf tugþúsunda barna er undir," segir í tilkynningunni. Sjaldgæft er að formlega sé lýst yfir hungursneyð. Það er meðal annars gert þegar 30 prósent barna á tilteknu svæði þjást af alvarlegri vannæringu og þegar tveir fullorðnir, eða fjögur börn, á hverja 10 þúsund íbúa láta lífið daglega vegna hungurs. Á svæðunum sem um ræðir í suðurhluta Sómalíu er vannæring komin yfir 50 prósent. „Ástæða hungursneyðarinnar í Sómalíu eru mestu þurrkar á svæðinu í yfir hálfa öld og langvarandi átök og óstöðugleiki í landinu. Matvælaverð hefur auk þess hækkað stöðugt. Verð á korni hefur aldrei verið jafnhátt - sums staðar hefur það hækkað um 270%. Ástandið hefur ýtt mörgum fjölskyldum yfir brúnina: Dýr margra eru fallin og ekkert eftir til að lifa á," segir í tilkynningunni. UNICEF á Íslandi stendur fyrir söfnun vegna neyðaraðgerða samtakanna í Sómalíu, Eþíópíu, Keníu og Dijbouti. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu UNICEF hér.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira