Aðeins fimm hafa skorað oftar en Heiðar að meðaltali Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. nóvember 2011 06:00 Heiðar Helguson fagnar einu marka sinna í haust. Nordic Photos / Getty Images
Heiðar Helguson fór á kostum þegar lið hans, QPR, vann 3-2 sigur á Stoke í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Heiðar skoraði tvö markanna og er nú alls kominn með fimm mörk á tímabilinu. Heiðar er í 10.-14. sæti yfir markahæstu menn deildarinnar en hann hefur spilað minna en flestir aðrir í kringum hann á listanum og er því í hópi efstu manna þegar kemur að meðalfjölda mínútna á milli marka. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er Heiðar í hópi stórstjarna þegar kemur að mínútu á milli marka að meðaltali og slær við mönnum eins og Wayne Rooney og Rafael van der Vaart. Heiðar skoraði fyrsta markið sitt á tímabilinu í leik gegn Blackburn 15. október síðastliðinn en það var fyrsti leikur hans í byrjunarliði á tímabilinu. Fram að því hafði hann aðeins fengið að spila í samtals 29 mínútur en síðan þá hefur hann haldið sæti sínu í byrjunarliðinu og meira að segja aldrei verið skipt af velli. Heiðar hefur þakkað knattspyrnustjóranum Neil Warnock traustið með því að skora alls fimm mörk og er hann langmarkahæsti leikmaður liðsins. Heiðar er næstmarkahæsti Íslendingurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 24 mörk. Hann á enn nokkuð í land með að ná Eiði Smára Guðjohnsen sem skoraði 55 mörk í 211 deildarleikjum með Chelsea á sínum tíma. Hann er nú hjá AEK í Grikklandi. Heiðar hefur þó tekið fram úr Eiði Smára, um stundarsakir að minnsta kosti, þegar kemur að meðalfjölda marka í leik. Heiðar hefur spilað 87 leiki og því skorað 0,28 mörk að meðaltali í leik. Meðaltal Eiðs Smára er litlu minna, eða 0,26 mörk í leik.Mínútur á milli marka að meðaltali: 1. Edin Dzeko, Manchester City 58,3 (9 leikir; 10 mörk á 583 mínútum) 2. Mario Balotelli, Manchester City 66,7 (8 leikir; 6 mörk á 400 mínútum) 3. Sergio Agüero, Manchester City 72,7 (11 leikir; 10 mörk á 727 mínútum) 4. Robin van Persie, Arsenal 76,4 (12 leikir; 13 mörk á 993 mínútum) 5. Demba Ba, Newcastle 91,8 (11 leikir; 8 mörk á 734 mínútum)6. Heiðar Helguson, QPR 95,8 (7 leikir; 5 mörk á 479 mínútum) 7. Ivan Klasnic, Bolton 100,7 (10 leikir; 6 mörk á 604 mínútum) 8. Wayne Rooney, Man. United 102,3 (11 leikir; 9 mörk á 921 mínútu) 9. Yakubu, Blackburn 105,6 (7 leikir; 5 mörk á 528 mínútum) 10. Rafael van der Vaart, Tottenham 112 (9 leikir; 6 mörk á 672 mínútum) 11. Javier Hernandez, Man. United 117,8 (11 leikir; 5 mörk á 589 mínútum)
Tengdar fréttir Heiðar: Varð að nýta tækifærið Heiðar Helguson átti viðburðaríka helgi í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði tvö mörk í 3-2 sigri sinna manna í QPR gegn Stoke. 21. nóvember 2011 07:00 Mest lesið Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Fleiri fréttir Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk „Hann var grátandi í hálfleik“ „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Sjá meira
Heiðar: Varð að nýta tækifærið Heiðar Helguson átti viðburðaríka helgi í ensku úrvalsdeildinni en hann skoraði tvö mörk í 3-2 sigri sinna manna í QPR gegn Stoke. 21. nóvember 2011 07:00