Hodgson kom fram hefndum gegn Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. apríl 2011 11:23 Nordic Photos / Getty Images
Liverpool missti niður 1-0 forystu gegn West Brom og tapaði eftir að hafa fengið á sig tvö mörk úr vítaspyrnum á lokakafla leiksins. Alls er sex leikjum nýlokið í ensku úrvalsdeildinni. Roy Hodgson er stjóri West Brom en hann var rekinn frá Liverpool í janúar síðastliðnum. Hann var svo ráðinn til West Brom til að bjarga liðinu frá falli og hefur liðið ekki enn tapað í sex leikjum undir hans stjórn. Liðið er nú í tólfta sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom varnarmaðurinn Martin Skrtel Liverpool yfir með skallamarki eftir hornspyrnu. Chris Brunt jafnaði svo metin úr víti sem var dæmt eftir að Sytrios Kyrgiakos braut á Peter Odemwingie í vítateig Liverpool. Markið kom á 62. mínútu en þremur mínútum fyrir leikslok var Odemwingie svo aftur á ferðinni. Hann lék á Kyrgiakos og var kominn einn gegn Pepe Reina. Odemwingie féll og var Reina dæmdur brotlegur. Brunt klikkaði ekki heldur í síðara skiptið og kom West Brom yfir. Skrtel fékk svo frábært tækfæri til að jafna metin og skora sitt annað mark í leiknum þegar hann skallaði fram hjá í uppbótartíma. Luis Suarez átti einnig tvær marktilraunir í blálokin en allt kom fyrir ekki. Liverpool er því enn í sjötta sæti deildarinnar með 45 stig en West Brom stökk upp í það tólfta með 36 stig. Þeir Daniel Agger og Glen Johnson, leikmenn Liverpool, þurftu báðir að fara af velli í fyrri háflleik vegna meiðsla. Chelsea tapaði mikilvægum stigum í toppbaráttunni er liðið gerði 1-1 jafntefli við Stoke á útivelli. Chelsea er nú ellefu stigum á eftir toppliði Manchester United og á tæpast möguleika á að verja enska meistaratitilinn upp úr þessu. Birmingham vann einnig mikilvægan sigur gegn Bolton í dag, 2-1, og tryggði sér dýrmæt stig í fallbaráttunni. Newcastle vann Wolves og er í níunda sæti deildarinner. Everton og Aston Villa skildu jöfn, 2-2, og þá gerðu Wigan og Tottenham markalaust jafntefli.Úrslit og markaskorarar:Birmingham - Bolton 2-1 1-0 Kevin Phillips (4.) 2-0 Craig Gardner (59.) 2-1 Johan Elmander (70.)Everton - Aston Villa 2-2 1-0 Leon Osman (38.) 1-1 Darren Bent (47.) 1-2 Darren Bent (68.) 2-2 Leighton Baines (83.)Newcastle - Wolves 4-1 1-0 Kevin Nolan (22.) 2-0 Shola Ameobi (45.) 3-0 Peter Lovenkrands (50.) 3-1 Sylvan Ebanks-Blake (58.) 4-1 Jonas Gutierrez (90.)Stoke - Chelsea 1-1 1-0 Jonathan Walters (8.) 1-1 Didier Drogba (33.)West Brom - Liverpool 2-1 0-1 Martin Skrtel (50.) 1-1 Chris Brunt, víti (62.) 2-1 Chris Brunt, víti (88.)Wigan - Tottenham 0-0
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira