Tíu stiga forskot hjá Man. Utd - Eiður spilaði í 35 mínútur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. apríl 2011 11:05 Berbatov fagnar marki sínu í dag.
Manchester United náði í dag tíu stiga forskoti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er liðið vann auðveldan sigur á Fulham, 2-0, á Old Trafford. United hefur engu að síður leikið tveimur leikjum meira en Arsenal en Lundúnaliðið þarf að vinna báða sína leiki til þess að minnka muninn aftur í fjögur stig. United hafði mikla yfirburði í leiknum í dag frá upphafi. Berbatov kom United yfir með skoti af stuttu færi eftir sendingu Nani. Einhver áhöld voru um hvort Berbatov hefði verið rangstæður en markið stóð. Antonio Valencia skoraði síðan sitt fyrsta mark fyrir United síðan hann fótbrotnaði illa á síðasta ári. Hann skallaði þá boltann í netið af afar stuttu færi. Fulham sótti lítið sem ekkert í leiknum og til þess að hressa upp á sóknarleik liðsins setti Mark Hughes, stjóri Fulham, Eið Smára inn á 56. mínútu. Svo mikinn tíma hefur Eiður ekki fengið í ensku deildinni í vetur. Eiður kom með talsverðan kraft í sóknarleik liðsins og hann átti skot rétt fram hjá marki United aðeins fimm mínútum eftir að hann kom af bekknum. Eftir skot Eiðs var allur vindur úr leikmönnum Fulham og United landaði auðveldum þremur stigum. Chelsea hoppaði síðan upp í þriðja sætið með sigri á Wigan sem var allt annað en auðveldur. Líflegasti fyrri hálfleikur dagsins var aftur á móti viðureign Spurs og Stoke. Þar voru skoruð fimm mörk í fyrri hálfleik en ekkert í þeim síðari. Spurs fékk þó öll stigin.Úrslit dagsins:Blackburn-Birmingham 1-1 0-1 Lee Bowyer (31.), 1-1 David Hoilett (45.)Bolton-West Ham 3-0 1-0 Daniel Sturridge (13.), 2-0 Lee Chung-Yong (20.), 3-0 Daniel Sturridge (50.)Chelsea-Wigan 1-0 1-0 Florent Malouda (67.)Man. Utd-Fulham 2-0 1-0 Dimitar Berbatov (12.), 2-0 Antonio Valencia (32.)Sunderland-WBA 2-3 1-0 Nicky Shorey, sjm (9.), 1-1 Peter Odemwingie (28.), 2-1 Phillip Bardsley (31.), 2-2 Youssouf Mulunbu (53.), 2-3 Paul Scharner (71.)Tottenham-Stoke City 3-2 1-0 Peter Crouch (11.), 2-0 Luka Modric (18.), 2-1 Matthew Etherington (26.), 3-1 Peter Crouch (33.), 3-2 Kenwyne Jones (41.)
Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Sjá meira