Terry neitar ásökunum um kynþáttaníð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. október 2011 11:30 Nordic Photos / Getty Images
John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur staðfastlega neitað því að hann hafi beitt Anton Ferdinand, leikmann QPR, kynþáttaníði í leik liðanna í gær. Upptaka af meintu atviki gekk á milli manna á internetinu eftir leikinn í gær. Á myndbandinu virðist Terry nota munnsöfnuð sem má flokka sem kynþáttaníð en hann gaf út yfirlýsingu í gær þar sem hann segir það rangt. Terry virtist ekki hafa neitað því að hafa sagt það sem hann virðist segja á myndskeiðinu en að það hafi verið tekið úr samhengi. Hann sagðist vera að svara Ferdinand sem hafi sakað hann um að beita sig kynþáttaníði. Terry hafi einfaldlega ekki sagt það að fyrra bragði, eins og Ferdinand virtist meina. „Ég myndi aldrei segja svona lagað við annan leikmann og mér finnst leiðinlegt að fólk trúir svona löguðu upp á mig," stóð í yfirlýsingu Terry. „Mér finnst dapurlegt að fólk hafi hrapað að ályktunum." Óvíst er hvort að einhverjir eftirmálar verða af þessu máli en fyrir skömmu sakaði Patrice Evra, leikmaður Manchester United, Luis Suarez hjá Liverpool um að hafa beitt sig kynþáttaníði í leik liðanna fyrr í mánuðinum.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira