Erlent

Google hannar leitarforrit fyrir hamfarasvæði

Forritið er afar auðvelt í notkun og mun Google opna fyrir notkun þess þegar hörmungar eiga sér stað.
Forritið er afar auðvelt í notkun og mun Google opna fyrir notkun þess þegar hörmungar eiga sér stað. mynd/ENGADGET
Í kjölfarið á jarðskjálftanum á Tyrklandi í gær hefur Google gefið út sérstakt leitarforrit.

Smáforritið er hannað fyrir snjallsíma og geta notendur annað hvort skráð upplýsingar um einhvern eða leitað eftir upplýsingum.

Google hannaði forritið eftir jarðskjálftann á Haíti á síðasta ári og var einnig notað þegar hörmungarnar riðu yfir Japan fyrr á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×