Man. Utd varð af mikilvægum stigum - öll úrslit dagsins 26. nóvember 2011 00:01
Rangur vítaspyrnudómur kostaði Man. Utd tvö mikilvæg stig gegn Newcastle í dag. Þrátt fyrir dóminn ranga þá fékk United færin til þess að klára leikinn en leikmönnum liðsins voru mislagðir fætur fyrir framan markð. Leikur liðanna var ekki mikið fyrir augað framan af. Chicharito kom United yfir er boltinn fór óvart í hann og inn. Ekki fallegasta markið sem Hernandez hefur skorað. Newcastle fékk síðan vítaspyrnu á silfurfati er dæmt var á Rio Ferdinand. Rio fór í boltann áður en hann kom við andstæðinginn og dómurinn kolrangur. Demba Ba var ekki að velta sér upp úr því og skoraði örugglega. United pressaði af þvílíku offorsi á síðustu tíu mínútum að það hálfa væri nóg. United hreinlega óð í færum, skaut í stöng sem og markvörðinn. Það var með hreinum ólíkindum að liðinu skildi ekki takast að skora. Þegar 20 sekúndur voru eftir af uppbótartíma tókst Hernandez að koma boltanum í netið en hann var dæmdur rangstæður. Chelsea vann afar kærkominn sigur á Wolves eftir magurt gengi upp á síðkastið. Sigur Chelsea aldrei í neinni hættu. Heiðar Helguson spilaði allan leikinn fyrir QPR sem tapaði óvænt fyrir Norwich. Grétar Rafn Steinsson spilaði síðustu 20 mínúturnar fyrir Bolton sem tapaði gegn Everton.Úrslit:Bolton-Everton 0-2 0-1 Marouane Fellaini (49.), 0-2 Apostolos Vellios (77.) Rautt spjald: David Wheater, Bolton (18.)Chelsea-Wolves 3-0 1-0 John Terry (7.), 2-0 Daniel Sturridge (28.), 3-0 Juan Mata (44.)Man. Utd-Newcastle 1-1 1-0 Javier Hernandez (49.), 1-1 Demba Ba, víti (64.) Rautt spjald: Jonas Gutierrez, Newcastle (79.)Norwich-QPR 2-1 1-0 Russell Martin (13.), 1-1 Luke Young (58.), 2-1 Grant Holt (72.)Sunderland-Wigan 1-2 1-0 Sebastian Larsson (7.), 1-1 Jordi Gomez, víti (44.), 1-2 Franco di Santo (90.+3).WBA-Tottenham 1-3 1-0 Youssuf Mulumbu (10.), 1-1 Emmanuel Adebayor (24.), 1-2 Jermain Defoe (81.), 1-3 Emmanuel Adebayor (90.+3).Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira