Warnock ánægður með að falla út úr deildabikarnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2011 07:30 Warnock ætlar sér þó stærri hluti í FA bikarnum. Nordic Photos/Getty Images
Neil Warnock, knattspyrnustjóri QPR, gerði lítið úr tapi sinna manna gegn Rochdale í annarri umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu í gærkvöld. Rochdale vann 2-0 sigur á Loftus Road og er komið í 3. umferð keppninnar. „Ég held að fólki sé sama um keppnina og það þarf að skoða hvers vegna það er," sagði Warnock að leiknum loknum. 4,775 áhorfendur mættu á Loftus Road í gærkvöld. Warnock hafði mun meiri áhyggjur af meiðslum Bradley Orr sem lék vel í 1-0 sigrinum á Everton á Goodison Park á laugardaginn. „Við höfum misst mikilvægan leikmann, Bradley Orr, sem spilaði mjög vel á laugardaginn. Til hvers? Það er ekki eins og við séum að fara að vinna keppnina," sagði Warnock. Steve Eyre, knattspyrnustjóri Rochdale, var ekki sáttur við ummæli Warnock sem honum fannst gefa í skyn að QPR hefði aldrei ætlað sér sigur í leiknum. „Neil sagði ekki fyrir leikinn að hann tæki hann ekki alvarlega. Ákvörðun hans að stilla Adel Taarabt og Jay Bothroyd upp í fremstu víglínu segir mér að hann hafi einmitt tekið leikinn mjög alvarlega," sagði Eyre.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira