Enski boltinn

Ferguson: Þriggja hesta hlaup

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur enga trú á því að Man. City og Tottenham muni blanda sér í slaginn um enska meistaratitilinn og spáir því að baráttan verði þriggja hesta hlaup.

"Ég held að það verðum við, Chelsea og Arsenal sem berjumst um titilinn," sagði Ferguson en hans lið heldur inn í jólaslaginn með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar.

United mætir Sunderland á morgun en sveinar Steve Bruce hafa verið að gera það gott upp á síðkastið.

"Ég veit að Harry Redknapp er að tala sitt lið upp en Spurs þarf að takast einnig á við Meistaradeildina sem er nýtt fyrir þá. Þess vegna verður aðeins erfiðara fyrir þá að halda sér öflugum á öllum vígstöðvum," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×