Allt lagt undir um hátíðirnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. desember 2010 10:00 Wayne Rooney í baráttu við Laurent Koscielny í leik Manchester United og Arsenal á dögunum. Nordic Photos / Getty Images
Eins og ávallt í ensku úrvalsdeildinni er mikið um annir hjá liðum deildarinnar um hátíðirnar. Framundan eru fjórar umferðir sem fara fram á aðeins tólf dögum en ballið byrjar með níu leikjum á sunnudag, öðrum degi jóla. Þó svo að liðin séu að meðaltali búin að spila sautján leiki til þessa í deildinni í haust hefur engu liði tekist að vinna meira en tíu leiki. Stærstu lið deildarinnar hafa misstigið sig óvenjumikið í haust og stærstu félögin hafa öll tapað minnst fjórum leikjum. Undantekningin er topplið Manchester United sem er enn taplaust en hefur gert sjö jafntefli í sextán leikjum. United hefur þó verið á góðu skriði að undanförnu og unnið sex af síðustu átta leikjum sínum. Liðið er í góðri stöðu, með 34 stig á toppnum og tveggja stiga forystu á næstu lið. United á þar að auki leik til góða. „Markmið mitt er að reyna að halda toppsætinu eftir fjórða janúar,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri United, en liðið á leik gegn Stoke á þeim degi. „Ef það tekst þá höfum við staðið okkur vel. Toppbaráttan í deildinni mun taka á sig sterkari mynd um hátíðirnar – ef veður leyfir,“ bætti hann við en sjö af tíu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi var frestað vegna snjókomu og slæmrar færðar á götunum í Bretlandi. Reyndar telur Nani, leikmaður United, að baráttan um enska meistaratitilinn standi aðeins á millli tveggja félaga – United og Chelsea. Síðarnefnda liðið er í fjórða sæti deildarinnar, þremur á eftir United. Á milli þeirra eru Arsenal og Manchester City, bæði með 32 stig. „Ég á ekki lengur von á öðru en að annað hvort Manchester United eða Chelsea verði enskur meistari í vor. Vonandi verður það United,“ sagði Nani. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ekki ánægður með þessi ummæli en hann stefnir nú að því að vinna titil með félaginu í fyrsta sinn í fimm ár. „Allir hafa sína skoðun og enginn er fullkominn,“ sagði Wenger. „Við búum í samfélagi þar sem allir vita allt og það er skömm að segja: „Ég veit það ekki.“ Sjálfur veit ég ekki hver muni standa eftir sem sigurvegari og hef ég stýrt mínum liðum í alls 1600 leikjum á ferlinum. Ef Nani veit það þá hlýtur hann að vera 1600 sinnum gáfaðari en ég.“ Hann segir að ekkert lið hafi komist á almennilegt skrið í deildinni í vetur. „Alltaf þegar lið virðast við það það að komast á flug þá hikstar í vélinni. Þannig hefur það verið að undanförnu og kannski segir það sitt um styrk deildarinnar.“ Síðasta dæmið um það er Manchester City sem á mánudaginn tapaði fyrir Everton, 2-1, eftir að hafa verið taplausir síðan í lok október. City-menn áttu möguleika á því að komast í toppsæti deildarinnar og sitja þar um jólin í fyrsta sinn í 81 ár. En allt kom fyrir ekki. En af risunum í Englandi hefur engum gengið jafn illa í haust og Liverpool en liðið er í níunda sæti deildarinnar, tólf stigum frá toppnum. Roy Hodgson tók við liðinu í sumar og hefur gengið á ýmsu í haust en til að mynda var skipt um eigendur eftir mikið fjölmiðlafár og mikla óvissu um fjárhagslega framtíð félagsins. Liðið virtist hafa náð sér á strik í byrjun nóvember er liðið lagði þáverandi topplið Chelsea, 2-0, og um leið sinn þriðja deildarleik í röð. En síðan þá hefur lítið gengið og liðið tapað og unnið á víxl. Góðu fréttirnar fyrir Liverpool eru þær að Steven Gerrard og Daniel Agger eru klárir í slaginn eftir meiðsli og geta því spilað þegar liðið mætir Blackpool á sunnudag. „Þetta er mikill styrkur fyrir okkur þar sem næstu dagar geta breytt öllu fyrir hvert einasta lið í deildinni,“ sagði Hodgson. Arsenal og Chelsea mætast svo á mánudagskvöldið en síðarnefnda liðið mun þá freista þess að vinna sinn fyrsta deildarleik síðan 10. nóvember nóvember.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira