Ancelotti: Roman hefur lofað að reka hann ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2010 12:30 Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea. Mynd/AP
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, er öruggur í starfi þrátt fyrir skelfilegt gengi liðsins að undanförnu. Ítalinn segir að eigandinn Roman Abramovich ætli að standa með honum á meðan hann kemur Chelsea-liðinu aftur í gang. Chelsea hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og er komið niður í þriðja sæti deildarinnar á eftir Arsenal og Manchester United. Það hefur lítið gengið síðan að Roman rak aðstoðarstjórann Ray Wilkins en Ancelotti mun ekki fara sömu leið. „Ég talaði við Roman eftir leikinn á miðvikudaginn," sagði Carlo Ancelotti en Chelsea tapaði þá 0-1 fyrir Marseille í Meistaradeildinni. „Hann sagði að ég hefði fullan stuðning hans og að hann skildi vel vandmálin hjá liðinu. Hann er að gera sitt allra besta til þess að styðja við bakið á öllum í liðinu," sagði Ancelotti. „Ég óttast ekki um starfið mitt. Ég hef líka fullan stuðning frá leikmönnunum og það er það mikilvægasta. Það vita allir að þetta er ekki góður tími fyrir okkur en við verðum að gera allt sem við getum til að koma okkur aftur af stað sem fyrst," sagði Ancelotti.Carlo Ancelotti, talar við leikmenn Chelsea.Mynd/APChelsea mætir Tottenham á útivelli á morgun og svo eru líka framundan leikir á móti Manchester United og Arsenal. „Okkar markmið er að vinna þessa þrjá leiki á móti Spurs, Man Utd og Arsenal því við vitum að örlög okkar ráðast í þessum þremur leikjum," sagði Ancelotti. „Við höfum getuna til þess að berjast um titilinn og við viljum nota Tottenham-leikinn til að koma okkur aftur af stað. Það halda allir að Chelsea sé ekki nógu gott lið til að berjast um titilinn af því að síðasti mánuður var ekki góður hjá okkur en við verðum með í baráttunni," sagði Ancelotti.
Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira