Wenger: Þeir verða að fara að tala saman í vörninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. desember 2010 17:00
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er nú farinn að tala um það opinberlega að sínir menn þurfti að fara tala betur saman inn á vellinum ef liðið ætlar sér að vinna langþráðan titil á þessu tímabili. Wenger var mjög ósáttur með jöfnunarmark Wigan í 2-2 jafntefli liðanna í vikunni en með sigri hefði Arsenal-liðið jafnað Manchester United og Manchester City að stigum á toppnum. Það er hægt að sjá svipmyndir úr leiknum með því að smella hér fyrir ofan. Jöfnunarmarkið var sjálfsmark varnarmannsins Sebastien Squillaci og kom eftir hornspyrnu og aðeins skömmu eftir að Wigan missti mann af velli. „Það var engin ástæða til þess að láta þá hafa þetta horn sem gaf þeim síðan þetta sjálfsmark. Leikmenn í mínu liði verða að fara að tala meira saman. Það var engin ástæða til þess að fá á sig þetta horn ef menn hefðu bara talað saman. Við þurfum að fara bæta þetta," sagði Arsene Wenger í viðtali við Arsenal-sjónvarpsstöðina. „Það er engin að taka að sér stjórnina og það er engin rödd sem rekur menn áfram ef einhverjir í liðinu missa einbeitinguna," sagði Wenger en næsti leikur liðsins verður á móti Birmingham á Nýársdag. „Við verðum að koma strax til baka og ná aftur upp einbeitingunni. Leikmenn voru pirraðir eftir Wigan-leikinn og ég held að svona komi ekki fyrir aftur í vetur," sagði Wenger.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira