Cech pirraður út í sóknarmenn Chelsea: Rangstæðir í hverri sókn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2010 10:45 Petr Cech, markvörður Chelsea. Mynd/Nordic Photos/Getty
Petr Cech, markvörður Chelsea, er viss um að stjórinn Carlo Ancelotti geti snúið við slæmu gengi liðsins en ensku meistararnir hafa aðeins náð í sex stig út úr síðustu átta deildarleikjum og sitja ekki lengur í Meistaradeildarsæti. Þeir geta reyndar bætt úr því á móti Grétari Rafni Steinssyni og félögum í Bolton í kvöld. „Þið verður að spyrja Carlo sjálfan hvernig honum líður en ég held að hann ráði við þetta verkefni. Hann er með mikla reynslu og það var mikil pressa á honum þegar hann var með AC Milan liðið," sagði Petr Cech. „Á síðasta tímabili fórum við líka í gegnum erfitt tímabil þar sem pressan var mikil á liðinu. Við náðum að koma til baka og vinna tvennuna og við ætlum að reyna að endurtaka leikinn í vor," sagði Cech eftir 1-3 tap Chelsea á móti Arsenal.Petr Cech, markvörður Chelsea.Mynd/Nordic Photos/Getty„Okkur hefur ekki tekist að finna taktinn því við erum að taka rangar ákvarðanir og ekki að gefa réttu sendingarnar. Við erum líka alltaf rangstæðir í hverri sókn og svo erum við líka að gera varnarmistök á síðasta þriðjunginum. Þetta eru ástæðurnar fyrr því af hverju við erum ekki að vinna leiki," sagði Cech. „Við höfum ekki náð góðum úrslitum undanfarin mánuð og erum komnir inn í vítahring. Við gerum mistök, er refsað og náum síðan ekki að skora mörk sjálfir. Það lenda allir í mótlæti í íþróttum og það er undir okkur komið að snúa þessu við. Við reynum að finna lausnir og höldum áfram okkar vinnu," sagði Cech. „Við verðum bara að fá einn leik þar sem hlutirnir detta aðeins með okkur. Um leið og við náum fyrsta sigrinum þá getur allt breyst skyndilega," sagði Cech að lokum.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira