Innlent

Íhuga að taka sýni í Grímsnesi og nágrenni

Boði Logason skrifar
Bíll frá fyrirtækinu að losa skólpvatn út á vatnsverndarsvæði við Þingvallavatn
Bíll frá fyrirtækinu að losa skólpvatn út á vatnsverndarsvæði við Þingvallavatn
Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps íhugar að láta að framkvæma sýnatöku á stöðum þar sem bílar frá Holræsa- og stífluþjónustunni hafa vanið komur sínar. Þetta kemur fram á fréttavefnum Sunnlenska.is

Þar er rætt við sveitarstjórann, Ingibjörgu Harðardóttur, sem segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvernig sveitarfélagið ber sig að þessu máli en vissulega verði sá möguleiki skoðaður að láta framkvæma sýnatöku. „Við fylgjumst með því hvernig málinu vindur fram." segir hún.

Eins og Vísir og Stöð 2 hefur fjallað mikið undanfarið þá voru það starfsmenn fyrirtækisins Holræsa- og stífluþjónustunnar sem losuðu skólpvatn út á vatnsverndarsvæði við Þingvallavatn í síðasta mánuði.






Tengdar fréttir

Vilja úttekt á rotþróm við Þingvallavatn

Brýnt er að gera úttekt á neysluvatns- og fráveitumálum við Þingvallavatn að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og þjóðgarðsvarðar. Strangar reglur voru settar 2006 en ekki er vitað hvernig þeim er fylgt.

Neysluvatni stefnt í hættu

Grunur leikur á að seyruvökvi úr rotþróm hafi verið látinn leka út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Heilbrigðisfulltrúi segir neysluvatni hætta búin.

Helmingur sýnanna reyndust menguð

Helmingur sýna sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands tók á Þingvöllum í vikunni reyndust menguð, en saurgerlar fundust í einu þeirra. Enn er óvíst hvort Holræsa- og stífluþjónustan verði ákærð fyrir að losa seyru á vatsnverndarsvæði Þingvalla.

Fær sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm

Sýslumaðurinn á Selfossi hefur fallist á að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands greiði 200 þúsund krónur í sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Félag sumarbústaðaeigenda kærði atvikið til lögreglu en heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafði áður veitt Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands áminningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×