Coventry tapaði án Arons Einars Elvar Geir Magnússon skrifar 26. desember 2010 16:53 Craig Bellamy skoraði fyrir Cardiff í dag.
Fimm leikir fóru fram í ensku 1. deildinni (B-deildinni) í dag en helming leikja dagsins var frestað vegna veðurs. Leeds fór illa að ráði sínu gegn Leicester á útivelli. Eftir að hafa komist í 2-0 misstu þeir leikinn niður í jafntefli 2-2. Max Gradel og Robert Snodgrass skoruðu mörk Leeds. Paul Gallagher minnkaði muninn á 72. mínútu og fjórum mínútum síðar jafnaði svo Andy King metin fyrir Sven-Göran Eriksson og lærisveina hans. QPR er með 44 stig, Cardiff 40 og Leeds í þriðja sætinu með 39 stig og hefur leikið leik meira en hin tvö. Cardiff vann 2-0 sigur á Coventry í dag en Seyi Olofinjana og Craig Bellamy skoruðu mörkin. Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Coventry þar sem hann tók út leikbann. Coventry er nú í sjötta sæti, síðasta umspilssætinu, með 34 stig. Reading vann Bristol City í Íslendingalausum leik og Jimmy Bullard skoraði dramatískt sigurmark fyrir Hull en hér að neðan má sjá öll úrslit dagsins. Barnsley - Burnley 1-2 Cardiff - Coventry 2-0 Leicester - Leeds 2-2 Reading - Bristol C 4-1 Sheffield U - Hull 2-3 Scunthorpe - Preston FRESTAÐ Crystal Palace - Norwich FRESTAÐ Derby - Doncaster FRESTAÐ Ipswich - Watford FRESTAÐ Middlesbrough - Nott Forest FRESTAÐ Í ensku C-deildinni áttust við Huddersfield og Hartlepool. Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Huddersfield en Ármann Smári Björnsson byrjaði á varamannabekk Hartlepool en kom inn sem varamaður á 82. mínútu. Jói Kalli var tekinn af velli þegar tuttugu mínútur voru eftir. Leikurinn endaði með 1-0 útisigri Hartlepool sem er í tíunda sætinu en Huddersfield er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Brighton sem situr í toppsætinu. Þetta var eini leikurinn sem fram fór í C-deildinni í dag en öllum öðrum leikjum deildarinnar var frestað.
Enski boltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira