Eiður vill kaupa upp eigin samning Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2010 13:51 Eiður Smári í leik með Stoke City. Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen vill kaupa upp samninginn sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City. Þetta hefur Vísir eftir sínum heimildum. Fyrr í vikunni var greint frá því í íslenskum fjölmiðlum að Eiður Smári hefði komist að samkomulagi um að fá sig lausan frá Stoke City. Samkvæmt upplýsingum Vísis er málið ekki komið svo langt. Eiður Smári vilji kaupa upp samninginn sinn við Stoke svo hann verði laus allra mála hjá félaginu. Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, hefur sagt í enskum fjölmiðlum að félagið sé reiðubúið að hlusta á tilboð í Eið Smára. Nú lítur út fyrir að eitt þeirra verði frá Eiði Smára sjálfum. Eiður á hálft ár eftir af samningi sínum við Stoke City en félagið keypti hann í lok sumars frá franska félaginu Monaco. Óljóst er hversu mikið Eiður Smári þurfi að greiða til að kaupa upp samninginn sinn en sú upphæð hleypur væntanlega á minnst tugum milljóna króna. Verði þetta niðurstaðan hefur Eiður Smári sjálfur öll völd í sínum höndum um framtíð sína. Félagaskiptaglugginn opnar um áramótin og verður opinn í allan janúar. Eiður hefur því rúmlegan mánuð til að ganga frá sínum málum. Ítarlega hefur verið fjallað um veru Eið Smára hjá Stoke. Hann hefur aldrei fengið tækifæri í byrjunarliðinu og komið við sögu í fjórum deildarleikjum sem varamaður. Síðasti leikur sem hann spilaði var gegn West Ham í ensku deildabikarkeppninni þann 27. október síðastliðinn - einnig sem varamaður.
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn