Erlent

Eldri hjón í Lillehammer unnu ofurpottinn í Vikingalóttóinu

Það voru hjón á sjötugsaldri í Lillehammer í Noregi sem unnu 900 milljón króna ofurpottinn í Vikingalottóinu í gær. Um er að ræða stærsta lottóvinning í sögu Noregs.

Hjónin voru með lottómiða sinn í áskrift og því var hringt til þeirra eftir dráttinn. Eiginmaðurinn svaraði símanum og fór í hálfgert lost við fréttirnar. Hann gat ekki talað eftir símtalið og taldi eiginkonan að hann hefði fengið slag og ætlaði að hringja eftir lækni. Þá tókst eiginmanninum að koma hinum gleðilegum tíðindum til skila.

Samkvæmt frétt í Verdens Gang var eiginmaðurinn ekki enn búinn að ná sér seint í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×