Sváfu hangandi í beltum lokaðir inni í námu 6. apríl 2010 01:00 Meira en 150 manns höfðu verið innilokaðir í námugöngunum síðan á pálmasunnudag. fréttablaðið/ap
Kína, AP 115 kínverskir námuverkamenn björguðust í gær eftir rúmlega viku innilokun í námugöngum. Þeir lokuðust inni á pálmasunnudag þegar vatn flæddi niður í námuna. Sumir þeirra höfðu borðað sag og trjábörk og fest sig með beltum við veggi námuganganna til þess að geta sofið án þess að drukkna. „Geturðu komið mér héðan út?“ spurði einn þeirra þegar björgunarmenn komu loksins. Ættingjum mannanna hafi fundist björgunaraðgerðir ganga hægt. Meira en viku tók að dæla vatni úr námunni til þess að hægt væri að komast að mönnunum. Urðu þá fagnaðarfundir, sem sýnt var frá beint í kínversku sjónvarpi. Tárvotir björgunarmenn sáust fallast í faðma þegar námuverkamönnunum var hjálpað út, vafðir teppum og síðan fluttir á brott með sjúkrabifreiðum. „Kraftaverk varð loksins,“ sagði Liu Dezheng, talsmaður björgunarsveitanna. Enn voru þó 38 menn eftir inni í göngunum. Óvíst var hvort eða hvenær takast mætti að bjarga þeim út, og ekki fengust upplýsingar um hvort í þeim hefði heyrst. Námuslys eru enn tíð í Kína, þótt þeim hafi fækkað nokkuð síðustu ár.- gb
Mest lesið Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra Sjá meira