Erlent

Mannskæð sprengjuárás á pílagríma í Bagdad

Yfir 40 fórust og yfir 100 eru særðir eftir sprengjuárás á hóp Shia múslima í norðurhluta Bagdad í Írak í gærkvöldi. Múslimarnir voru í pílagrímaför að helgum stað í borginni.

Samkvæmt frétt um málið á BBC voru pílagrímarnir á leið í átt að Mussa al-Kadhim moskvunni þegar árásin var gerð. Þetta er mesta mannfall á einum degi í Bagdad síðan í maí.

Þrátt fyrir árásina halda pílagrímar áfram að streyma til moskvunnar þar sem minnast á andláts Moussa al-Kahdim á áttundu öld en hann er einn af dýrlingum Shia múslima.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×